Frí heimsending fyrir pantanir yfir 8.000 kr.
Sendingamöguleikar eru eftirfarandi:
Pósturinn – Pakki pósthús
Pöntun send á næsta pósthús. Verð: 1.190 kr.
- Pakki Pósthús er afhentur á pósthúsi viðtakanda við framvísun tilkynningar og skilríkjameð mynd.
- Tilkynning um pakka er send á GSM númer sem skráð er á pakkann. Ef ekkert GSM númer er skráð er prentuð út tilkynning og hún borin út á það heimilisfang sem skráð er fyrir pakkanum.
- Viðtakandi getur einnig veitt öðrum aðila skriflegt
umboð til að taka á móti pakkanum á pósthúsi fyrir sína hönd.
- Geymslutími pakka á pósthúsi er 30 dagar frá komudegi. Geymslugjald leggst á sendingar eftir 10 virka daga á pósthúsi.
Pósturinn – Pakki heim
Pantanir eru almennt keyrðar heim 1- 3 dögum eftir póstlagningu. Verð: 1.490 kr.
- Pakkar Heim eru keyrðir út til viðtakenda þar sem Pósturinn hefur heimaksturskerfi. Ef póstlagt er fyrir síðasta póstlagningartíma verður pakkinn keyrður út 1., 2. eða 3. dag eftir póstlagningu.
- Gæðastaðlar Póstsins miðast við að tilraun til afhendingar sé reynd í a.m.k. 85% tilfella fyrsta dag eftir póstlagningu þar sem það er mögulegt.
Pósturinn – Pakki póstbox
Póstbox eru opin 24/7 og eru staðsett víðsvegar um landið. Verð: 990 kr.
Sjá staðsetningar hér.
- Pakki Póstbox telst afhentur viðtakanda þegar QR kóði hefur verið skannaður eða pin númer slegið inn og hólf opnast.
- Gæðastaðlar Póstsins miðast við afhendingu daginn eftir í Póstbox í 90% tilfella.
- Póstbox eru fyllt tvisvar á dag virka daga og einu sinni á laugardögum
- Viðskiptavinir geta eingöngu móttekið eftirfarandi pakkasendingar í Póstbox:
- Innlendar pakkasendingar undir stærðarmörkum
- Hámarksþyngd fyrir Pakki Póstbox er 20 kg
- Innlendar pakkasendingar með engum gjöldum sem viðtakandi þarf að greiða
- Innlendar pakkasendingar án viðbótarþjónustu að undanskildu brothætt.
- Til að nota póstbox þarf að skrá sig á minnpostur.is og velja þar póstbox sem afhendingarval. Hægt er að breyta um valið póstbox hvenær sem er.
- Eftir að póstbox hefur verið valið munu allar sendingar framvegis berast í það póstbox, óháð utanáskrift sendinganna. Tilkynningar berast í GSM símanúmer viðtakanda.